Skilmálar fyrir aðgang notenda að vefumsjónarkerfi Spinna veflausna slf.
Þessir skilmálar gilda um hýsingar- og tölvupóstþjónustu Spinna veflausna slf, hér eftir nefnt Seljandi. Viðskiptavinur skuldbindur sig til að hlíta þeim í einu og öllu.
Með innskráningu staðfestir þú, fyrir þína hönd og eftir atvikum fyrir hönd þess lögaðila sem þú ert fulltrúi fyrir, að þú hafir kynnt þér efni skilmála þessara, að þú samþykkir þá án fyrirvara, að þú skuldbindir þig til að fylgja þeim í hvívetna og að þú undirgangist þær skyldur notanda sem í þeim felast, þar með talið það afsal réttinda sem þar er lýst.
-
Seljandi áskilur sér rétt til að ákveða hvort notkunarskilmálum þessum hafa verið framfylgt á fullnægjandi hátt.
-
Seljandi áskilur sér rétt til að loka tafarlaust fyrir þjónustu þeirra sem ekki framfylgja þessum skilmálum.
-
Seljandi áskilur sér rétt til að senda tölvupóst á viðskiptavini með tilkynningum er varða þjónustuna.
-
Óheimilt er að dreifa tölvuvírusum eða öðru sem kann að skemma hugbúnað, trufla vinnu, tölvubúnað eða samskipti annarra.
-
Hvers kyns óumbeðnar sendingar tölvupósts eru óheimilar úr tölvukerfum seljanda.
-
Notkun sem veldur óeðlilegu álagi á netkerfi seljanda er óheimil.
-
Notendum er óheimilt að endurselja þjónustu seljanda.
-
Seljandi áskilur sér rétt til að loka þjónustu um stundarsakir ef nauðsyn krefur s.s. vegna tæknibilana eða uppfærslum á tölvukerfi.
-
Seljandi ber enga ábyrgð á tjóni viðskiptavina vegna hvers konar bilana, sambandsleysis eða truflana á tölvukerfi seljanda.
-
Ekki er leyfilegt að gera tilraunir til að komast yfir lykilorð eða gögn önnur en eigin á tölvukerfi seljanda.
-
Viðskiptavinur ber ábyrgð á öllum aðgerðum sem framkvæmdar eru með réttu notendanafni og lykilorði en notkun rétts lykilorðs jafngildir undirskrift viðskiptavinar.
-
Ef viðskiptavinur hefur ástæðu til að ætla að óviðkomandi aðili hafi komist yfir upplýsingar um notendaheiti og/eða lykilorð hans að þjónustu Seljanda ber honum skylda að tilkynna það án tafar til seljanda.
-
Viðskiptavinum er óheimilt að hýsa efni á tölvukerfi seljandi sem brýtur í bága við íslensk lög og almennar siðareglur.
-
Sé ekki kveðið á um annað með skriflegum hætti í samningi aðila skal Seljandi halda öllum eignarréttindum yfir hverju því sem Seljandi fær verkkaupa í hendur og leggur honum til í tengslum við samninginn.
-
Verkkaupi skal halda öllum eignarrétti að því efni sem verkkaupi leggur til á grundvelli samnings aðila, þ.á m. því sem fellt er inn í hugbúnað eða verkefni.
Verkkaupi telst eigandi allra gagna sem vistuð eru hjá Seljanda.
-
Sá eignarréttur sem vísað er til getur verið, en er þó ekki takmarkaður við, eignarrétt yfir hugbúnaði, þar með töldum tölvuforritum, tölvukóða eða öðrum hugverkum sem notið geta verndar hugverkaréttar, svo sem höfundaréttar eða hönnunarverndar, að lögum.
-
Viðskiptavinur getur ekki framselt réttindi sín samkvæmt samningi án skriflegs samþykkis Seljandi. Heimildarlaust framsal hefur hvorki gildi gagnvart Seljandi né kaupanda.
-
Við uppsögn
varðveitir Seljandi ekki gögn viðskiptavinar eftir að gildistíma samnings er lokið eða honum hefur verið sagt upp af öðrum orsökum. Hvíli skylda á viðskiptavini að varðveita gögn á grundvelli ákvæða laga eða samninga, eins og t.d. varðveisla bókhaldsgagna á grundvelli laga um bókhald, sem Seljandi hefur haft til varðveislu skuldbindur viðskiptavinur sig til þess að varðveita sjálfur eintök af þeim gögnum. Seljandi ber ekki ábyrgð á að varðveita umrædd gögn fyrir hönd viðskiptavinar eftir samningslok. Við lok samnings skulu viðskiptavini afhent leyfi og forrit sem hann sannarlega átti við upphaf samningsins og önnur leyfi og forrit sem hann hefur keypt á þjónustutíma, nema um annað hafi verið samið. Öll vinna sem Seljandi sinnir vegna samningsloka er unnin í tímavinnu.